Eigendur

Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen eru eigendur Valhallar fasteignasölu. Þeir tóku við rekstri Valhallar 1. mars 2023 af Ingólfi Geir Gissurarsyni sem stofnaði Valhöll ásamt Bárði Tryggvasyni í febrúar 1995. Snorri og Óskar eru báðir reynslumiklir fasteignasalar sem hafa starfað við allt sem viðkemur fasteignaviðskiptum í mörg ár.
Snorri hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2005. Snorri útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði árið 2013 frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2015. Árið 2017 öðlaðist hann málflutningsréttindi við héraðsdómstóla.
Óskar hefur frá árinu 2014 starfað við fasteignasölu og ráðgjöf tengdri fasteignarfjármögnun fyrirtækja. Óskar útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði árið 2006 frá Háskólanum í Reykjavík, meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2010 og meistaragráðu (LL.M) í evrópurétti frá Háskólanum í Lundi árið 2013.
Nýjustu
Við deilum reglulega nýjum fréttum, greinum og ráðleggingum sem varða fasteignamarkað og líf í nærumhverfi.
Allar fréttir
Tekjuhæstur fasteignasölur
Valhöll var með mestu tekjuaukningu allra fasteignasala milli áranna 2023 og 2024 en tekjur fasteign…
Lesa meira
Stelst í súkkulaðið í vinnunni
Snorri Björn Sturluson, annar eigandi af Valhöll fasteignasölu, er mikill sælkeri og elskar að grill…
Lesa meiraUmsagnir
Fáðu tilboð
Skildu eftir upplýsingar og við hringjum í þig með óbindandi tilboð í söluþjónustu eða verðmat á eign þinni.
Af hverju
Áratuga reynsla
Við höfum áratuga langa reynslu af fasteignaviðskipum sem nýtist okkar viðskiptavinum.
Persónuleg þjónusta
Hver viðskiptavinur fær persónulega þjónustu og ráðgjöf sem er sniðin að hans þörfum.
Heiðarleiki og fagmennska
Við leggjum áherslu á gagnsæi og heiðarleika í okkar störfum og fagleg vinnubrögð í hverju skrefi.
Nútímaleg nálgun
Við notum nýjustu tæknilausnir og markaðsleiðir til að tryggja hámarks árangur hratt og örugglega.