GJALDSKRÁ
Söluþóknun m.v. einkasölu: 1,5 - 2,5% af söluverði eignar auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 495.000 auk 24% virðisaukaskatts.
Söluþóknun m.v. almenna sölu: 1,75 – 2,5% af söluverði eignar auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 495.000 auk 24% virðisaukaskatts.
Söluþóknun sumarhúsa: 2,5% af söluverði eignar auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun er þó aldrei lægri en kr. 495.000 auk 24% virðisaukaskatts.
Sala félaga og atvinnufyrirtækja: 5% af heildarvirði, þ.m.t. birgðir auk gagnaöflunargjalds. Lágmarksþóknun er kr. 650.000 auk 24% virðisaukaskatts.
Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna: 3% af söluverði bifreiðar auk 24% virðisaukaskatts en þóknun er þó aldrei lægri en kr. 100.000 auk 24% virðisaukaskatts.
Þóknun fyrir að annast milligöngu um og gerð leigusamnings: Þóknun vegna leigusamninga sem gilda í 5 ár eða skemur nemur mánaðarleigu auk 24% virðisaukaskatts. Þóknun vegna leigusamninga sem gilda lengur en 5 ár er sem nemur leigu tveggja mánaða leigufjárhæðar auk 24% virðisaukaskatts.
Skjalagerð sem fellur undir lokafrágang fasteignaviðskipta (kaupsamningur, afsal og veðbandayfirlit) er innifalin í söluþóknun.
Önnur skjalagerð sem unnin er á vegum fasteignasölunnar er gjaldskyld samkvæmt tímagjaldi löggilts fasteignasala.
Gagnaöflunargjald vegna sölu fasteigna er kr. 39.900 auk 24% virðisaukaskatts og leggst ofan á söluþóknun.
Umsýslugjald vegna eftirfylgni og frágangs viðskipta er kr. 24.900 auk 24% virðisaukaskatts.
Verðmat fasteigna er gjaldfrjálst ef eign er sett í sölumeðferð hjá Valhöll.
Verðmat sem unnið er án söluferlis er gjaldskylt samkvæmt tímagjaldi löggilts fasteignasala, lágmark kr. 39.900 auk 24% virðisaukaskatts.
Fagleg ljósmyndun fasteignar er innifalin í söluþóknun.
Aukamyndir, drónamyndir eða sérstök myndvinnsla er gjaldskyld samkvæmt verðskrá ljósmyndara hverju sinni.
Almennar netauglýsingar á helstu fasteignavefjum (mbl.is, visir.is, fasteignir.is, fasteignablaðið) eru innifaldar í söluþóknun.
Prentauglýsingar í dagblöðum og sérstakar markaðsherferðir eru gjaldskyldar samkvæmt verðskrá viðkomandi miðla hverju sinni.