Um okkur

Valhöll

Fasteignasala

Valhöll fasteignasala var stofnuð af þeim Ingólfi Geir Gissurarsyni og Bárði Tryggvasyni í febrúar 1995. Stjúpfaðir Ingólfs, Ásmundur Ólafsson, stakk upp á því að fasteignasalan yrði nefnd Valhöll en hann var mikill áhugamaður um goðafræði. Fyrstu þrjú árin hafði Valhöll aðsetur í Mörkinni 3 í Reykjavík en árið 1998 fluttist starfsemin í fallegt skrifstofuhúsnæði að Síðumúla 27 og hefur verið þar til húsa fram á daginn í dag.

Þann 1. mars 2023 urðu mikil vatnaskil í rekstri Valhallar en þá tóku fasteignasalarnir og lögfræðingarnir Snorri Björn Sturluson og Óskar H. Bjarnasen við rekstrinum. Ingólfur starfar þó áfram með nýjum eigendum ásamt öðru öflugu starfsfólki fasteignasölunnar sem margt hefur unnið þar í áraraðir. Frá því að Snorri og Óskar tóku við rekstrinum hafa þeir byggt starfsemina á sterkum grunni Valhallar ásamt því að innleiða margar breytingar til að styrkja reksturinn og upplifun viðskiptavina og starfsfólks enn betur. Mikill metnaður er lagður í að gera Valhöll að eftirsóknarverðum vinnustað og að ráðgjöf og vinna í þágu viðskiptavina verði í sérflokki á fasteignamarkaði.

Hjá Valhöll starfa hæfir og reynslumiklir fasteignasalar og lögfræðingar sem hafa það að leiðarljósi að gera fasteignaviðskipti viðskiptavina örugg og ánægjuleg. Meðal viðskiptavina Valhallar eru einstaklingar, byggingarverktakar, leigufélög, opinberar stofnanir og sveitarfélög. Valhöll starfrækir einnig leigumiðlun á íbúðar- og atvinnuhúsnæði.

Skrifstofur Valhallar að Síðumúla 27
Valhöll fáni
Síðumúli 27 — hús Valhallar

Hafðu

samband