FRÓÐLEIKUR
Skoðun
Fasteignasali kemur að skoða eignina og kynnir sér hana vel og spyr seljandann ítarlega út í allt sem hann telur að skipti máli við sölu eignarinnar og skráir niður öll helstu atriði varðandi eignina s.s. skipulag, herbergjafjölda, ástand innréttinga, gólfefna, glugga, glers, þaks, rafmagns, múrs og klæðningar.
Verðmat
Fasteignasali verðmetur eignina en að setja rétt verð á eign sem á að selja er eitt af því sem skiptir hvað mestu máli við sölu fasteignar.
Söluumboð
Fasteignasali skal gera skriflegan samning við seljanda eignar áður en eignin fer í sölu. Á söluumboðinu koma fram allar upplýsingar um þóknun fasteignasalans, hvort um einkasölu eða almennasölu er að ræða og um kostnað sem seljandi þarf að greiða ef söluumboði er sagt upp.
Myndataka
Fasteignasala pantar tíma hjá ljósmyndara til að mynda eignina. Það er mikilvægt að seljandi taki vel til áður en ljósmyndarinn kemur og létti á eigninni sé þess þörf. Góðar myndir skipta miklu máli þegar kemur að sölu eigna.
Gagnaöflun
Fasteignasali skal afla allra nauðsynlegra gagna um eignina áður en hún fer á sölu svo sem gagna frá opinberum aðilum, seljanda eignar og húsfélagi.
Söluyfirlit
Fasteignasali skal semja ítarlegt söluyfirlit fyrir eignina þar sem kemur fram lýsing á eigninni og upplýsingar um ástand hennar frá seljanda eignarinnar ásamt upplýsingum sem fasteignasali hefur sjálfur orðið áskynja við skoðun á eigninni og gagnaöflun um hana.
Auglýsingar
Fasteignasali lætur útbúa auglýsingu um eignina fyrir samfélagsmiðla og lætur birta hana.
Sýningar / opin hús
Fasteignasali sýnir eignina áhugasömum aðilum, hvort sem það er í einkasýningum eða opnum húsum, í samráði við seljanda eignar.
Kauptilboð
Fasteignasali stillir upp kauptilboði frá kauptilboðsgjafa og afhendir það seljanda eignar og fer vel yfir það með honum. Seljandinn getur þá samþykkt kauptilboðið, hafnað því eða gert gagntilboð.
Kaupsamningur
Fasteignsali undirbýr kaupsamning þegar búið er að samþykkja kauptilboð og leysa úr öllum fyrirvörum og boðar kaupanda og seljanda á kaupsamningsfund.
Afhending
Seljandi tekur á móti kaupanda í eigninni á afhendingardegi nema annað hafi verið ákveðið. Seljandi skal lesa af rafmagnsmæli og hitamæli (ef hiti er ekki innifalin í húsgjöldum) og tilkynna eigandaskiptin og stöðu mælanna til viðeigandi aðila.
Afsal
Þegar seljandi hefur uppfyllt sínar skyldur samkvæmt kaupsamningi og kaupandi hefur greitt eignina að fullu þá á kaupandi rétt á afsali úr hendi seljanda. Fasteignasali boðar seljanda og kaupanda til að koma og skrifa undir afsal á skrifstofu fasteignasölunnar eða með rafrænum hætti. Að lokinni undirskrift er afsalinu þinglýst og söluferlinu formlega lokið.
1. Byrjaðu að pakka
Það skiptir miklu máli að fasteignin sé ekki yfirfull af húsgögnum og öðrum hlutum þegar hún er sýnd. Yfirfullar eignir virka minni en þær eru í raun og veru og sjá kaupendur þær ekki alltaf í réttu ljósi. Léttu á eigninni og hentið því sem henda má og settu aðra hluti í geymslu.
2. Gerðu við
Gerðu við það sem hefur setið á hakanum. Salan gengur betur fyrir sig og þú færð hugsanlega hærra verð fyrir eignina. Mundu að smáatriðin skipta máli.
3. Þrífðu hátt og lágt
Áður en eign er sýnd er mikilvægt að taka til og þrífa hana hátt og lágt. Það er mikilvægt að fyrsta upplifun væntanlegra kaupenda sé jákvæð þar sem þeir taka oft ákvörðun um kaup á fyrstu mínútum við skoðun á fasteign.
4. Verði ljós
Yfirleitt höfða björt rými betur til flestra kaupenda. Of dökkir litir eða lítil lýsing sýnir eignina kannski ekki réttu ljósi. Það getur því borgað sig að mála eignina í ljósum litum eða hafa góða lýsingu þannig að eignin njóti sín sem best.
5. Útisvæði
Falleg útisvæði s.s. svalir, verandir eða garðar eru mikil viðbót við eignir og sannkallaðir sælureitir á sumrin. Taktu til á þessum svæðum og stilltu upp fallegum húsgögnum og plöntum til að sýna þau í bestu ljósi.
6. Góðar myndir
Myndir af fasteign geta skorið úr um hvort að kaupendur komi að skoða eða ekki. Góðar myndir eru því gulls ígildi. Notaðu fagmann til að mynda eignina.
7. Ekki sýna sjálf/ur
Það er yfirleitt betra að fasteignasalinn sýni eignina fremur en seljandinn. Fasteignasalinn á að þekkja fasteignina vel og vera í stakk búinn til að svara flestum spurningum kaupenda sem og öðrum spurningum sem tengjast fasteignaviðskiptum. Þá eyða kaupendur gjarnan meiri tíma í að skoða eignina ef fasteignasalinn sýnir, sem getur aukið möguleikann á sölu.
8. Rétt verð
Að setja of hátt verð á fasteign getur orðið til þess að þú missir af góðum kaupendum og lengt mikið í söluferlinu. Of hátt verð getur leitt til þess að kaupendur geri sér ekki ferð til að skoða eignina né geri tilboð. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þegar eignin er hluti í keðjusölu og þarf að seljast hratt. Að setja raunhæft verð á eign verður yfirleitt til þess að fleiri komi að skoða og bjóði í eignina sem eykur líkur á að fá uppsett verð eða jafnvel yfirverð.
9. Gerðu gagntilboð
Það er ekki alltaf sem kaupendur bjóða ásett verð í fasteign. Þegar það gerist er mikilvægt að seljendur bregðist rétt við og taki lágu tilboði ekki sem móðgun heldur einungis sem eðlilegum samningaviðræðum. Ráðfærðu þig við fasteignasalann þinn og haltu samningaviðræðunum gangandi. Að öðrum kosti gætir þú verið að missa af góðri sölu.
10. Veldu góðan fasteignasala
Fasteignasalinn sem þú færð til að selja eignina þína kemur fram fyrir þína hönd. Það er mikilvægt að hann hafi góða þekkingu á markaðinum og fylgi væntanlegum kaupendum vel eftir. Veldu fasteignasala sem þú ert sátt/ur við og treystir til að ljúka söluferlinu á vandaðan og öruggan hátt.