Fáðu tilboðí þjónustu

Fáðu mat

á fasteignina þína

Hjá Valhöll fasteignasölu starfar samhentur hópur reynslumikilla löggiltra fasteignasala sem hefur áralanga reynslu af sölu fasteigna. Við leggjum metnað okkar í persónulega og faglega þjónustu frá fyrsta fundi og þar til kaupsamningur er undirritaður.

Verðmat á eign er fyrsta skrefið í söluferlinu. Við förum yfir eignina með þér, metum stöðu hennar á markaði og veitum þér ráðgjöf um verðlagningu og næstu skref.

Verðmat hjá Valhöll er þér að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga. Þú færð skýrt yfirlit yfir áætlað söluverð, sölukostnað og þá þjónustu sem við bjóðum upp á.

Sendu okkur línu með upplýsingum um eignina þína og við höfum samband innan sólarhrings með óbindandi tilboð í söluþjónustu.