Tvöfölduðu veltuna á fyrsta ári

APR 10, 2026

Á fyrsta rekstrarárinu eftir að nýir eigendur tóku við rekstri fasteignasölunnar Valhallar í Síðumúla tvöfaldaðist veltan. Hún fór úr 141 milljón króna árið 2023 upp í um 280 milljónir á síðasta ári.

Valhöll var stofnuð árið 1995 og heldur því upp á 30 ára afmæli sitt um þessar mundir. Nýju eigendurnir, fasteignasalarnir, lögfræðingarnir og æskuvinirnir Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson, hafa sett markið hátt. Þeir ætla að vaxa enn meira og innan fárra ára vilja þeir að Valhöll verði komin í hóp fimm stærstu fasteignasala landsins.

„Ákvörðunin um þessi kaup breytti rosalega miklu í okkar lífi og hefur reynst mikið gæfuspor," segir Óskar í samtali við ViðskiptaMoggann. Þeir Snorri tóku við rekstrinum 1. mars 2023. „Okkur Snorra fannst mjög spennandi að koma inn með alla okkar reynslu og orku."

Valhöll hefur verið staðsett í Síðumúla 27 frá árinu 1998. Óskar segir að engar breytingar hafi verið gerðar á húsakynnum Valhallar síðan þeir tóku við rekstrinum. Vandað hafi verið til verka við innréttingu húsnæðisins á sínum tíma. Uppsetning skrifstofunnar sé hefðbundin og gamalgróin. Skrifstofur eru meðfram útveggjum og alrými í miðjunni.

„Í dag er algengara að vinna í opnu rými. En okkur líkar þetta vel. Við viljum halda þessu fyrirkomulagi enn um sinn a.m.k."

Óskar segir að stefnt sé á að byggja Valhöll upp í að vera 15-20 manna vinnustaður. Í dag eru þar 13 starfsmenn. „Mér finnst við eiga mikið inni."

Tvöfölduðu veltuna á fyrsta ári

Hafðu samband

Senda fyrirspurn