Ingólfur Geir Gissurarson

Ingólfur Geir Gissurarson

Mín

saga

Ingólfur Geir er stofnandi Valhallar fasteignasölu og einn reynslumesti fasteignasali landsins. Hann stofnaði Valhöll ásamt Bárði Tryggvasyni í febrúar 1995.

Ingólfur er löggiltur fasteignasali og leigumiðlari. Fyrstu þrjú árin hafði Valhöll aðsetur í Mörkinni 3 en hefur frá árinu 1998 verið staðsett í Síðumúla 27.

Þann 1. mars 2023 tóku fasteignasalarnir og lögmennirnir Óskar H. Bjarnasen og Snorri Björn Sturluson við rekstri Valhallar af Ingólfi. Ingólfur starfar áfram með nýjum eigendum og miðlar af áratuga reynslu sinni til viðskiptavina og samstarfsfólks.

Hafðu samband við Ingólfur Geir Gissurarson

Umsagnir

viðskiptavina Ingólfur
Ingólfur hefur í gegnum tíðina unnið fyrir okkur hjón þegar við höfum verið í húsnæðis kaupum og sölu og staðið sig frábærlega. Ingólfur seldi fyrir okkur núna síðast raðhús þegar við vorum að stækka við okkur og varð okkur innan handar við kaup á einbílishúsi í frammhaldinu. Það var mikill fengur í að hafa hann með, hann vann sína vinnu að mikilli fagmennsku. Við munum hiklaust leita til hanns aftur.
Pétur Blöndal og Eyrún Einarsdóttir
Þegar kom að því að selja Biskupsgarð var lögð mikil áhersla á faglegt söluferli enda um að ræða virðulegt hús með mikla sögu á besta stað í borginni. Ingólfur var fenginn til að annast söluna sem hann leysti með miklum sóma og stóðst fyllilega væntingar varðandi alla þætti sölunnar. Ferlið var faglegt og hnökralaust og ljóst að mikil reynsla, yfirgripsmikil þekking og ekki síst lipurð Ingólfs í öllum samskiptum var það sem skipti þar mestu máli.
Birgir Gunnarsson